27.1.2012 | 08:42
007
9.1.2012 | 20:04
Portrett
Þá hef ég loksins lokið við þriðju myndina í portrett myndaröðinni af kvikmyndastjörnunum mínum. Ég er nokkuð ánægð með Loren og Monroe en ætla að finna nýja mynd af Taylor, sú kona verðskuldar betri mynd en þessa
Allar þessar myndir eru á þykkum ramma, 25x25 cm.
2.1.2012 | 20:45
2011 - litið um öxl
Gleðilegt ár og takk fyrir innlitin á liðnu ári.
Í ársbyrjun var ég svo heppin að fá aðgang að vinnustofu í Listagilinu sem ég nýtti mér í 4 mánuði. Það gaf mér kost á að breiða svolítið úr mér og vera stórtækari en ég hef getað hingað til. Ekki í stærð verka, heldur gat ég verið með fleiri verk í gangi en fram að því þar sem vinnuaðstaðan mín hér heima var frekar léleg. Ég ákvað að mála 10 fjallamyndir, allar í stærð 25x90 cm, sumt nýtt efni, annað endurtekningar þar sem mig langaði til að gera aðeins betur eða prófa aðrar útfærslur. Í júlí ákvað ég að slá til og halda sýningu, var annars búin að gefa það frá mér.... vantaði stað til þess. En húsfreyjan í Arnarnesi við Eyjafjörð bauð mér að setja upp sýningu í kaffihúsinu sínu og þáði ég það. Eftir að þessari vinnu með fjöllin lauk hef ég verið að prófa eitt og annað, nokkrar barnamyndir t.d. og svo ákvað ég að taka til við að mála portrett, rifja upp gamla takta. En portrettið finnst mér svo skemmtilegt að ég ætla að halda áfram í því og hver veit nema ég stefni á sýningu sumarið 2012....... á einhver sal að bjóða mér? 
Nú er ég aftur komin með vinnuaðstöðu heima, betri en áður og er býsna lukkuleg með hana.
Hér á eftir koma litlu kríla myndirnar sem ég hef verið að dunda við
Nú í desember hef ég verið að vinna í gamalli hugmynd sem kviknaði út frá penna teikningu sem elsta dóttir mín teiknaði fyrir rúmum 20 árum síðan. Mér fannst myndin svo skemmtileg að ég ákvað að geyma hana og gera eitthvað við hana síðar.....sauma út í púða, mála eða eitthvað annað. Svo liðu árin og ég löngu búin að gleyma hvert ég setti hana þegar hún, s.l. haust, datt út úr matreiðslubók sem ég hef sjálfsagt aldrei litið í....var bara í einhverri tiltekt. En nú var tíminn kominn....ég orðin amma lítils drengs og upplagt að gera eitthvað fyrir hann. Þannig að ég stækkaði upp litlu krass mynd mömmu hans og málaði hana í glaðlegum litum. Mér finnst þetta skemmtileg útkoma 
Olía á striga 50x50 cm.
Menning og listir | Breytt 19.1.2012 kl. 13:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.12.2011 | 10:03
Gleðilega aðventu
Nú er stutt til jóla og jólarjúpurnar komnar upp á vegginn minn.
Njótið hvers dags með gleði í hjarta 
kær kveðja, Rósa
3.11.2011 | 18:35
Nýjar myndir af Ströndum
Nú hef ég lokið við tvær myndir úr Norðurfirði á Ströndum. Báðar eru þær í stærð 25x90 og að sjálfsögðu olía á striga eins og ávallt.
11.10.2011 | 15:13
Er á facebook !
Minni á síðuna mína á Facebook RósArt - Málverk
Endilega smella á "like" og fylgjast með 
13.9.2011 | 08:25
Portrett
Önnur portrett myndin tilbúin. Mér gekk betur með þessa en þá fyrri enda komin í smá æfingu 
Marilyn Monroe. Olía á striga. 25x25 cm.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 08:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.8.2011 | 22:15
Portrett
Nú hef ég lokið við fyrstu portrett myndina í allavega 3ja mynda portrett röð.
Elizabeth Taylor er fyrirmyndin....vona að ég hafi komið eitthvað nálægt viðfangsefninu 
14.8.2011 | 14:54
Eyrarfjall
2.8.2011 | 12:55
Þakkir
Kærar þakkir til allra þeirra sem komu á sýninguna mína og sérstaklega til húsráðenda í Arnarnesi fyrir að taka á móti mér og myndunum mínum 










